Una Dögg Guðmundsdóttir
Brownie með oreo kexkökum
Innihald:
250 g smjör
3,5 dl sykur
2 dl kakó
4 tsk vanillusykur
4 egg
3 dl hveiti
1 pakki oreo kex

Aðferð:
Stillið ofninn á 180 gráður við undir- og yfirhita. Smjörið brætt í potti og leyft aðeins að kólna, passið að það sé ekki sjóðandi heitt. Sykri, kakó, vanillusykri og eggjum bætt út í pottinn og hrært saman. Loks er hveiti sigtað saman við og hært vel í blöndunni. Gott er að smyrja ferkantað form að innan og hella deiginu ofan í.
Áður en kakan er sett í ofninn er oreo kex kökum stungið ofan í deigið, gott að brjóta kexkökurnar niður sem og setja þær heilar saman við.
Bakað við 180 gráður í um það bil 20-22mínútur (kakan á að vera dálítið blaut þegar hún er tekin út), kakan er látin kólna í forminu.
Fallegt að skera svo kökuna í minni bita, skreyta með berjum og jafnvel að sigta smá flórsykur yfir.
Verði ykkur að góðu !