Una Dögg Guðmundsdóttir
Kókos raspaðar kjúklingalundir á vöfflu...
Kjúklingur á vöfflu skemmtileg hugmynd af mat sem kemur skemmtilega á óvart! Hentar bæði í kvöldmat og í brönsinn!
Innihald:
500 gr kjúklingalundir
1 stk egg
1 dl mjólk
5 msk hveiti
160 gr kókosmjöl
2 tsk paprikuduft
2 tsk kúmin duft
2 tsk hvítlaukskrydd
4 msk kókosolía til steikingar
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
1. Byrjið á að hræra saman egg og mjólk í skál, hveitið fer í aðra skál og í þriðju skálina fer
kókosmjölið ásamt kryddunum, hrærið kryddin vel saman við kókosmjölið.
2. Dýfið hverri kjúklingalund í hveiti, þaðan er henni dýft í mjólkurblönduna og að lokum í
kókosmjölsblönduna, passið að hjúpa kjúklingalundina vela f kókosmjöli.
3. Steikið hverja lund upp úr kókosolíu á vel heitri pönnu þangað til að þær eru gullinbrúnar.
4. Setjið í eldfast form og inn í ofn í um 25 – 30 mínútur við 200 gráður.