top of page
Search
  • Writer's pictureUna Dögg Guðmundsdóttir

Kjúklingasalat með sumarlegum blæ

Hérna er uppskrift að einstaklega góðu og sumarlegu salati sem einfalt er að skella í eftir vinnu fyrir vinina, nú eða fjölskylduna alla, fullorðna jafnt sem börn. Með hækkandi sól og betra veðri er tilvalið að skella kjúklingi á grillið og fá hið einstaka grillbragð, blandað saman við ferskt salat.


1 pakki kjúklingalundir 1 krukka af Stonewall kitchen sósunni Coconut Curry Simmering Sauce Góð salatblanda ½ agúrka 2-3 tómatar Handfylli af kasjúhnetum ½ granatepli – innvolsið Nokkrir hvítlauks-brauðteningar  keyptir tilbúnir Parmesan-ostur til að strá yfir salatið í lokin



Byrjið á að marínera lundirnar í Coconut Curry sósunni í að lágmarki 1 klst. Setjið lundirnar á grillið og eldið vel í gegn. Skerið niður tómatana og gúrkuna, takið innvolsið úr eplinu og saxið  niður hneturnar. Blandið saman við salatið. Þegar kjúklingalundirnar eru tilbúnar eru þær lagðar yfir salatið og svo er toppurinn að strá smá parmesan-osti yfir og brauðteningum. Fullkomið er að bjóða upp á sumarlegan sódakokteil eða freyðivíni.

54 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page