top of page
Search
  • Writer's pictureUna Dögg Guðmundsdóttir

Mexíkóskur kjúklingaréttur, bragðgóður & einfaldur.

Hérna kemur uppskrift að góðum kjúklingarétti. Lítil fyrirhöfn fylgir þessum rétti og hann þykir alltaf jafn góður. Léttur réttur með smá mexíkósku ívafi.


Innihald

  • 4-5 kjúklingabringur

  • 1 dós ostasósa úr krukku1

  • 1 dós salsasósa úr krukku

  • 170 g Doritos snakk (veljið ykkar uppáhaldsbragðtegund)

  • 100 g rifinn ostur

  • 1 dós sýrður rjómi

Aðferð

  1. Byrjið á að skera niður kjúklingabringurnar í bita og steikið upp úr olíu á pönnu og kryddið.

  2. Blandið mexíkóskri ostasósu og salsasósu saman í potti við vægann hita.

  3. Leggið helminginn af sósublöndunni í botninn á eldföstu formi, setjið kjúklingabitana ofan á og brjótið niður snakk yfir, endurtakið tvisvar sinnum.

  4. Stráið rifnum osti yfir ásamt því að setja nokkrar klípur af sýrðum rjóma aðeins yfir réttinn.

  5. Eldið í ofni í um 25–30 mínútur á 180 gráðum.

  6. Berið fram með góðu salati og sýrðum rjóma til hliðar.



42 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page